Halið var í skógræktarreit Skeiðamanna í Áshildarmýri þar sem Valgerður Auðunsdóttir tók á móti hópnum og sagði sögu þetta merkilega reits.
Þaðan var haldið að Stóra-Hofi í Gnúpverjahreppi þar sem Guðríður Helgadóttir sagði frá uppbyggingu gróður og byggðar á staðnum. Starfsstöð Skógræktarinnar í Þjórsárdal var heimsótt þar sem fulltrúi frá Skógræktinni hitti hópinn og sagði frá starfseminni á svæðinu.
Haldið áfram að nýrri brú yfir Þjórsá ofan við Þjófafoss sem gerð er úr íslenskum við. Þar var einnig hugað að framgangi Hekluskógaverkefnisins.